Viðskiptaráðherra búinn að segja af sér og reka forstjóra og stjórn Fjármálaeftirlitsins: 2-0 fyrir FÓLKINU

(fáum kosningar líka)
Kíkti út á rúntinn í gær, búin að eiga frekar svartan dag og var að reyna að láta mér líða betur. Virkar oft ágætlega að fara á rúntinn, keyra um borgina og nágrenni reykja nokkrar sígó, hugsa og hlusta á tónlist. En já, ég allavega ákvað að kíkja í Hagkaup í Skeifunni svona rúmlega ellefu um kvöldið, opið allan sólarhringinn

Anyways, ég fer þarna inn og ætla að kaupa svart karton f.einn tíma í fjarnáminu. Nei, þeir eiga ekkert svoleiðis en ég finn þarna brjóstahaldara í minni stærð (held að það sé mín stærð) sem mig ákkúrat vantar svo ég kaupi hann. Æi, svo var ekkert strikamerki á þessu þannig að ég var "leiðinlegi" kúnninn í smástund en þá fór mér að líða frekar illa. Svipað og þegar er að fara að líða yfir mann. Ég reyni að koma mér að bílnum og þarf að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni svo að það líði ekki yfir mig. Þegar ég ætla að fara að opna bílinn verð ég að stoppa og sitja aðeins á hækjum mér en vá, þá leið eiginlega bara yfir mig. Datt rólega aftur fyrir mig og lá þarna í bleytunni og skítnum í ... smástund. Þetta var heví asnalegt, ég vissi að ég væri þarna en vissi samt eiginlega ekki að ég væri þarna. Mjög skrítið. En já, svo opna ég augun og hugsa að ég geti nú ekki legið þarna mikið lengur. Ég stend rólega upp, opna bílinn og sest inn. Ekki tekur mikið betra við þar því ég fæ krampa í móðurlífið (það er ekkert orð sem lýsir staðnum betur), verð geðveikt máttlaus og flökurt. Svo hringi ég í Gunzo og bið hann um að koma og hjálpa mér (vissi nefnilega að hann var á bíl og ekki farinn að sofa). Hann kemur korteri seinna og þá er ég búin að gubba en er enn gjörsamlega að drepast. Hann styður mig yfir í farþegasætið á bílnum mínum og brunar með mig til Elsu þar sem ég fæ að fara á klósettið.
Hún heldur að þetta geti jafnvel verið botnlangakast og hringir þess vegna á læknavaktina. Þar halda þau að þetta hafi verið ristilkrampi en að það eigi að hringja aftur ef verkurinn fari ekki. Sem betur fer róaðist hann nú niður.
En OJ, þetta var ógeðslegt! Ég gæti vel trúað því að hríðir séu svona slæmar. Ái-vont.
En mér líður allavega betur núna - fæ enn stingi en ekkert í líkingu við gærkvöldið.
Ætla að tjilla í dag og jafnvel á morgun.
Laters píps