Saga af stúlku
29.06.2007 21:55:44 / snikkin

Komin aftur í kunnuglegt umhverfi

Loksins er ég komin aftur til Puerto Ordaz (Pzo). Kom adfaranótt föstudags. Heimleidin gekk ekki áfallalaust. Thad slokknadi á loftkaelingunni en korteri seinna stoppudum vid og bílstjórarnir sögdu ad vid myndum stoppa í 10 mín. Piff, as if ég trúi thví. En their sögdu sannleikann og lögudu loftkaelinguna. Ég veit ekki alveg hvenaer ég kom til Pto. Ordaz en thad var um 3-leytid.

Annars gekk aevintýraferdin mín ekki neitt. Juan ákvad ad fylgja mér og kom frekar seint thannig ad vid fórum bara í Sambil (verslunarmidstöd) og svo hittum vid Carlos Requena, Alan og fraenda Alans og horfdum á Mexico spila gegn Brasilíu. Til gamans má geta ad sá leikur fór fram hér í Pzo. Í nýja leikvanginum sem heitir Cachamay.

Anyways, ég var ekki raend í Caracas og já Einar, thad er "skemmtileg" tilhugsun ad allir séu raeningjar. Svo skemmtileg ad ég thordi varla út úr húsi ein, fór lengst yfir götuna í bakaríid ein. Thad sem spiladi líka inn í er ad thar sem ég er hvít og bláeygd thá svindla leigubílstjórarnir thvílíkt á manni. Sérstaklega í Caracas. Í Pzo gera their thad líka en ég er svona nokkurn veginn ad fá tilfinningu fyrir thví hvad er sanngjarnt og hvad ekki.

Blas er ad útskrifast í dag frá háskólanum La Salle í San Felix. San Felix og Pto. Ordaz mynda saman Ciudad Guyana (ísl. thýding: Guyana borg).

En ég er allavega komin aftur á kunnuglegar slódir... skemmtid ykkur um helgina, ég veit ad ég mun gera thad ;)

Laters


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 20:16:50 / snikkin

Enn einn dagur í Caracas

Ojá, svona er lífid nú yndislegt. Ég verd nú samt ad vidurkenna ad ég kann engan veginn vid Caracas. Borgin er allt of stór, hávaer og haettuleg fyrir minn smekk. Á morgun aetla ég samt ad reyna ad gera sem mest úr deginum, fara snemma út og finna lestarstöd - eda allavega straetóstöd.

Ég hef ákvedid ad stytta ferdina um einn dag - Blas er ad útskrifast á föstudaginn og mig langar til ad djamma med strákunum. Krúttin eru alltaf ad segjast sakna mín og ... ég sakna theirra líka. Kapalsjónvarpid styttir mér stundirnar.

Aetla ad tala vid Marem um thetta í kvöld. En thad thýdir einfaldlega ad ég muni ekki geta djammad neitt í Caracas en mér er alveg sama. Hún er stór og haettuleg - látid engan segja ykkur eitthvad annad.

Vona bara ad ég verdi ekki raend á morgun medan ég er úti ad leika mér. Mun samt ekki taka med mér myndavélina.... eda jú, kannski. Sjáum til.

Later 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 21:48:07 / snikkin

Rútuferd helvítis

Úúúúúff... loksins komin á leidarenda. Lagdi af stad med rútu kl. 8:45 í gaerkvöldi (ad stadartíma ad sjálfsögdu) . Myndin Hulk var sýnd og svo sofnadi ég. Ég rumska eitthvad vid thad ad ljósin eru kveikt og fólk á ferli en sofna strax aftur. Vakna seinna, rútan enn stopp og búid ad slökkva á loftkaelingunni. En thad thýdir nottla bara ad thad sé steikjandi hiti - thar fyrir utan var ég í sídbuxum, flíspeysunni og med teppi. Ég ákvad nú ad kíkja út - áttadi mig á thví ad rútan hefdi bilad thar sem thad voru endalaus laeti í köllunum sem voru ad reyna ad koma rútunni í lag.

Ég giska á ad um klukkutíma sídar hafi ég verid komin aftur upp í rútu thegar kona kemur upp á efri haed rútunnar og byrjar ad tala um ad rútan leggi ekkert aftur af stad og vid thurfum ad bída í klukkutíma eftir annarri rútu sem kemur frá Pto. la Cruz. "Thad thýdir ad vid komumst aftur af stad um 6-leytid," hélt hún áfram. VÁ!!! Vid áttum ad vera ad koma til Caracas um 6-leytid. 

Ég hringdi í Carlos thegar búdin opnadi thar sem haegt var ad hringja. Hann var allur hinn hressasti og thegar ég sagdi vid hann ad mig langadi mest aftur til baka svaradi hann hinn elskulegasti: "komdu, vid bídum eftir thér." 

En ad lokum kom rútan. Ekki jafn thaegileg og hin en ég gat sofnad. Svo var sýnd Fantastic4 2, get svo sem ekki kvartad thó ég hefdi verid til í ad heyra almennilega í talinu. Á hádegi komumst vid svo loks á rútustödina og ég tók leigubílheim til Maremar (já, hún heitir Marem, ekki Maren:^) ). Thad var nú ekkert einfalt vegna mikillar umferdar og svo vissi hann ekkert hvar thetta var. En thetta fannst allt á endanum. 

Er bara búin ad liggja í tjilli sídan ég kom og horfa á tvaer bíómyndir.

Later 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 19:43:21 / snikkin

Rútumidi til Caracas

Loksins keypti ég mér rútumida til Caracas... fer á morgun (föstudag) kl. 8:45 um kvöldid ad stadartíma. Kem svo til Caracas á laugardagsmorgun - sef í rútunni. Í thetta skiptid verd ég betur undirbúin, Kelvis aetlar ad lána mér teppi og annan bakpoka. Nenni ekki ad taka alla ferdatöskuna med mér fyrir vikuferdalag.

Bakpokinn hans Carlos hvarf sl. laugardag. Vid héldum ad honum hefdi verid stolid en sem betur fer vard bara einhver misskilningur og vid nádum í hann í dag. Bakpokinn var sem sagt tekinn í misgripum - thad var ekki tekinn neinn peningur eda neitt. :D

En Carlos var med gemsann "minn" í gaerkvöldi thegar hann fór á aefingu. Nema hvad... honum var stolid!!! Thannig ad ég er ekki med neinn gemsa í augnablikinu. Vid erum ad vona ad honum verdi skilad... thad má alltaf vona.

En já... aftur ad Caracasferdinni. Ég kem til med ad gista hjá Maren, vinkonu Carlosar. Vonast til ad geta séd eina dansaefingu hjá henni en hún aefir flamenco dans.

Ekkert meir í bili... aetla ad fara ad slappa af. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 02:48:42 / snikkin

17.júní....

Ennthá er 17.júní hér í Venezuela - klukkan 22:38 thegar ég skrifa thessi ord. Í dag er einnig Día del padre ( fedradagur ). Af thví tilefni vil ég óska födur mínum til hamingju med daginn.

Annars er allt bara í rólegheitunum hérna... aetla ad kaupa farmidann á morgun til Caracas - hef enn ekki alveg ákvedid mig hvort ég fari til Merida eda ekki.  Thad kemur allt í ljós.

Hvad er annars ad frétta af mér??? Hmmm.... Áttfaetlan lifir ennthá gódu lífi hérna í horninu fyrir ofan tölvuna. Ég hef ákvedid ad skíra hana - íslenska nafnid er allavega Trítla. Hef ekki sagt strákunum frá nafngiftinni enda mundu their bara halda ad ég vaeri gedveik. Annars var Carlos algjör draumur hérna í vikunni og fór med kúst medfram öllu loftinu til ad taka köngulaernar - Trítla var sú eina sem lifdi af. 

Mér lídur annars bara mjög vel... búin ad spila fullt af truko og já, ég mun kenna theim sem vilja laera thegar ég er komin á klakann aftur. Aetla ad kaupa bókina - enda svo líklega á ad thýda hana og halda námskeid :P híhíhí

Verst af öllu er ad ég má bara taka med mér eina flösku af Cacique. Spurning hvort ég aetti ad taka thad sem ég drekk alltaf eda annad sem heitir Cacique de 500 años ( 500 ára Cacique) en thad á víst ad vera roooosalega gott romm. Thad var mjög gott, en persónulega fann ég engan svakalegan mun. 

Ég er búin ad laera ad spila dómínó líka. Danskennslan gengur thó ekki sem skyldi thar sem ég eydi kvöldunum í ad spila truko.

Ég hef thetta ekki lengra í bili... tharf líka ad reyna ad vakna í fyrramálid til ad hringja í VÍS. Úff... hvad gerir madur ekki fyrir smádinga.

Annars bid ég bara ad heilsa thangad til naest.... smoooches


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 15:15:18 / snikkin

Halló halló

Thad er alltaf sama vedurblídan hér í Puerto Ordaz. ... í sól og sumaryl... lallalalala

 

En jáh... ég aetladi nú ekki ad skrifa um sjálfa mig heldur reyna ad setja inn vidjó:

http://www.youtube.com/watch?v=WWyJJQbFago

 

Thid verdid bara ad klikka á linkinn - mér finnst thetta geeeeggjad vídjó.

 

 - smáinnskot: ehemm.... I`m still learning. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 00:05:10 / snikkin

Sniff sniff

búhúhú... sakna klakans. Eda ekki klakans heldur vina. :cry::cry::cry:

Er ad deyja úr leidindum.. í allan dag. *geisp*

Mig langar alveg út en í gaerkvöldi skaut einhver thremur skotum hérna tveimur götum frá íbúdinni. Svo ég er kannski ekki sú aestasta í ad fara ein út í augnablikinu. Kelvis heyrdi skotin og sá einhvern gaur hoppa inn í bíl sem brunadi í burtu. Vid fylgdumst svo med fólkinu (sem hefur líklega verid mjög skelkad) bíd eftir löggunni. Engum virdist thó hafa ordid meint af thessum skotum thví enginn sjúkrabíll lét sjá sig.

En djööööf.. leidist mér núna. Spurning hvad ég geri til ad létta lundina. Blas og Andres eru inni í stofu ad spjalla um gud má vita hvad. Their voru ad tala um pólitík ádan. Chavez... alltaf er talad um Chavez. Thetta er soldid einsog sjálfstaedismenn og their sem eru alfarid á móti sjálfstaedismönnum. Thad vita allir ad sjálfstaedismenn eru blindir á slaemu hlutina sem their gera og eru langbestir (í theirra augum) en vid hin vitum betur. 

Hverju hef ég komist ad um Chavez? Ekki mikid, fylgjendur Chavez segja eina sögu en andstaedingar segja adra. T.d. thegar Chavez var raent og farid med hann á eyju - skv. fylgismönnum Chavez var honum raent, skv. andstaedingum sagdi hann af sér og var fluttur á eyju til ad tryggja öryggi hans.  Einsog ég skildi thad thá er thad einhver regla ad ef forseti segir af sér thá er hann fluttur á öruggan stad. 

En thó eru allir sammála um thad ad thessir dagar voru hörmulegir fyrir thjódina thví thad dó fullt af fólki og svoleidis.  

Hvad meira??? Já, frú könguló er enn tharna fyrir ofan. Hún er ekkert smá ljót. Hey já, batteríid í myndavélinni minni er ónýtt. Thvílíkt rugl... tharf ad kaupa nýtt batterí. Djóf er ég fuckin pirrud út af thví. Thad mun kosta mig skildinginn.

Peningamálin mín standa ekki nógu vel thví hérna hefur allt haekkad í verdi :^)   Thó á ég enn eftir 30 thús krónur (íslenskar sko) en thaer tharf ég ad nota til ad ferdast. Hef ekki einu sinni efni á ad borga gistingu og er thví upp á nád adra komin hvad thad vardar.

 Djöf vildi ég óska ad Kelvis mundi koma... gaetum allavega farid út, keypt bjór og setid á torginu hérna fyrir nedan (innan varnarmúrs blokkarinnar ad sjálfsögdu). Kannski ég sendi kallinum sms ad sjá hvad gerist.

Jaeja... vid verdum í bandi... og ég thakka fyrir öll svörin vid faerslunni hér ad nedan (öll núll svörin 8|  )

Later 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 13:36:47 / snikkin

Thad yrdi nú fallegt af ykkur...

... ad fylla út medfylgjandi lista hérna í skodanir.  Takk takk.

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 17:34:48 / snikkin

Rigning í augnablikinu

Jújú, loksins kom rigningin sem ég er búin ad fylgjast med nálgast af svölunum. Rosaflott ad geta fylgst med thessu öllu saman.

Hvad er annars ad frétta af mér?? Hmmm.... ekki mikid. Er bara ennthá hérna í Puerto Ordaz. Fór á fótboltaleik í gaer - Deportivo Español vs. La Gran Sabana. Carlos er sko í Dep.Español. Lokatölur 1-1 jafntefli - ég gaf theim ekki mikla heppni í thetta skiptid en kannski í naesta leik. Annars fae ég vonandi ad skella mér í sundlaug á eftir, thad er ef rigningin hindrar thad ekki. Fólki er frekar illa vid rigninguna hérna - eitthvad tengt rakanum í loftinum. Madur kvefast víst mjög fljótt :S

Fleira í fréttum.... Helv. köngulóin er enn hérna í horninu fyrir ofan tölvuna. Sem betur fer er alveg einn og hálfur metri í hana thannig ad ég er ekkert sjúklega hraedd. Carlosi finnst thetta nú reyndar ótharfa hraedsla í mér og laetur mig heyra thad óspart. Ég hef aftur á móti heyrt kommentin hans thúsund sinnum ádur (bara á íslensku) thannig ad thau fara bara inn um annad eyrad og út um hitt.

Hmmm.... ég hefdi kannski ekki átt ad blása á helv. áttfaetluna thví hún virdist vera ad undirbúa árás á mig. En hún er enn uppi í loftinu - já, thetta er bara venjuleg könguló. Engin tarantúla hér á ferd.

Hvad get ég sagt meira.... Jú, ég er ad byrja undirbúning á ferdinni til Caracas - gaeti meira ad segja verid ad ég skelli mér til Merida í framhaldinu. Svona til gamans thá var mér sagt ad rútuferd frá Merida til Puerto la Cruz (sem er í 2 klst fjarlaegd frá Pto. Ordaz) tekur 20 klst. En thad er ákkúrat rútan sem ég hyggst taka.

En já, ég aetla ekki ad hafa thetta lengra í bili. Vid sjáumstum sídar.  


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 16:37:48 / snikkin

mér finnst rigningin gód....

jújú, regntímabilid er byrjad. Thad er fínt vedur en inn á milli koma dembur. Rosaflott ad geta séd hvenaer thad rignir thví yfirleitt kemur rigningin frá San Felix sem er ákkúrat hluti af útsýninu af svölunum.

Annars dreymdi mig skrítinn draum. Ég man bara smávegis af honum en thad var eitthvad vesen milli okkar Carlosar og ég var med gleraugu. Lilja og Elsa voru tharna lika, thad var einsog vid vaerum á einhverju festivali. Í endann fatta ég ad ég er med gleraugun og tek thau af mér. "Vá, af hverju er ég med gleraugun thegar ég sé alveg skýrt án theirra" sagdi ég.

Ef einhver veit hvort thetta thýdi eitthvad thá vaeru skýringar vel thegnar.

Annars er allt fínt. Klukkan er 12:36 á hádegi, Nilson er ad elda hádegismatinn fyrir okkur Blas, Pepe og kaerustu Pepe. Nilson er gódur kokkur.... LOVE HIS FOOD!

Thetta verdur ekki lengra í bili.... ástarkvedjur frá Puerto Ordaz.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 13:59:56 / snikkin

Myndir

 

 

 Blas, Carlos og ég

  

Juan og ég 

 Já, ég var med frunsu og strákarnir eru bara berir ad ofan innanhúss vegna hitans. Thad er engin sýnithörf og sumir hérna halda ad thid Íslendingarnir munid fá ranga mynd af theim or something. En vid erum nú frjálslyndari en thad.... er thagi??

Fleiri myndir eru á slódinni hér fyrir nedan.... ég mun ekki setja inn neinar nýjar myndir fyrr en í júlí thar sem ég má bara setja inn 100MB á mánudi

http://www.flickr.com/photos/elsaof

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 12:27:14 / snikkin

Alltaf kvef....

Thetta er nú alveg ótrúlegt, thad skiptir engu máli hvar ég er - alltaf naer helv. kvefid í rassgatid á mér. Ég er búin ad vera med hálsbólgu í nokkra daga (skrítid thar sem ég fae sjaldan hálsbólgu og hvad thá í nokkra daga), hóstinn er stödugur og helvítis horid fer í taugarnar á mér.

 Smásnýtupása.....

 Carlos hefur tekid ad sér pabbahlutverkid og er ég haett ad reykja fyrir framan hann til ad hlusta ekki á tudid. Hann hefur hótad ad hringja í pabba en thad er ad sjálfsögdu meira sagt í gríni en alvöru thar sem hann talar enga ensku og pabbi talar enga spánsku - nei pabbi, thó thú getir sagt "playa de dios" thá talardu ekki spánsku.

Annars vard rútínan fyrir svefninn ansi löng í gaerkvöldi. Thar sem reykurinn fer virkilega í mig og ég mátti ekki gera neitt fór ég snemma í háttinn (enda ótrúlegt hvad ég er threytt, hlýtur ad vera slappleikinn). En hér er rútínulistinn:

  1. Ég byrjadi á thví ad blanda eitt lyf sem heitir Laimoqualin. Thad er fyrir slímid sem ég hósta upp. Tek smásopa í einu og laet thetta hristast adeins í kokinu (einsog madur gerir oft med flúor/munnskol). Thetta tekur 5-10 mín. (glasid er hálffullt).
  2. Ein skeid af Bisolvon. Ég man ekki alveg hvad thetta gerir en held ad thetta sé hóstasaft eda fyrir hálsinn. Ég rugla thessum tveim alltaf saman.
  3. Á thessum tímapunkti tharf ég ad hósta soldid og snýta mér.
  4. Kelvis var svo gódur ad fara heim til sín (hann á heima nokkrum haedum fyrir nedan) og saekja Vicks krem og C-vítamíntöflur. Ég tók engar töflur thar sem madur á ad taka thaer eftir mat en audvitad setti ég á mig Vicks-kremid.
  5. Saug eina Strepsils.

Rútínan er ordin svo löng ad ég gleymdi ad bursta í mér tennurnar ádur en ég fór ad sofa. Ég veit hún virkar ekki löng en vá... thetta tekur sinn tíma. Ég er ad deyja mig langar svo í sturtu en hún er svo köld og ég aetla ad athuga hvort ég hafi eitthvad annad val thegar fólkid vaknar. Efast um ad hún sé ad gera mér gott.

Annars er bara allt gott ad frétta. En ég aetla ad segja thetta gott thar sem ein kónguló ákvad ad stoppa beint fyrir ofan tölvuskjáinn. Later.


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 62340
Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010