Saga af stúlku
24.02.2008 15:06:15 / snikkin

Konur alls staðar

Til hamingju með konudaginn   -   njótið þess að láta kallana dekra við ykkur. Ef engir kallar eru í lífinu þá verður maður bara að njóta sín sjálfur, hehe - have a little quality time with yourself ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 15:52:07 / snikkin

Endurkoman

Jújú, ég er komin aftur. Var nú reyndar aldrei langt undan en þetta helv. kerfi lá eitthvað niðri og tjah, svo bara einhvern veginn kom ég mér ekkert í að skrifa.
En já, það sem kveikti í mér að skrifa er án efa fréttir af múslimunum sem eru enn og aftur brjálaðir yfir skopmyndateikningum af múhammeð. Vá!! Djöf eru þeir hörundsárir. Skopmyndin sjálf er nú ekki einu sinni svakaleg - ég er með miklu miklu miklu skemmtilegri hugmynd að skopmynd. Mín hugmynd gerir meira að segja grín að bæði guði og múhammeð. Maður verður að hafa húmor fyrir sjálfum sér.

Hvað hef ég annars verið að gera af mér? Ehhh... ekkert nýtt. Búin að fara aðeins út á lífið og lofa að hjálpa fólki en fólkið sem biður um hjálp hefur bara ekkert samband þannig að mar veit ekki alveg hvað er í gangi. En ég hef nú talað við þau og það er bara feimni sem ræður því að fólk er ekki að hafa samband.
Hvað meira??? Jú, ég er að dreeeeeeepast í bakinu at the moment. Reyndar ekki ákkúrat í augnablikinu en það er vegna mikilla verkjalyfjainntöku - virkuðu loksins :klikk:

Guð, ég gæti örugglega skrifað miklu meira ef ég bara nennti því. Seinna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 13:58:57 / snikkin

Kuldaskræfan

Skil ekki þennan svakalega kulda - brrrrrrr. Fór loksins á pöbbinn í gærkvöldi. Elsa kom með mér á tónleika á Gauknum. Þar komu fram ýmsir hiphop listamenn og loksins loksins loksins gátum við reykt inni. Þvílík hamingja. :haha:

Við ætluðum að fá okkur nokkra bjóra og ekki fara seint heim. Bjórarnir urðu aðeins fleiri og við náðum leigubíl rúmlega fjögur heim. :^)  En við skemmtum okkur geðveikt vel sem er allt sem skiptir máli.

Hörpudísin á afmæli á morgun - smátjútt henni til heiðurs í kvöld. Úfff.... damn, ég þarf að fara í ríkið og undirbúa mig. Ég mæti bara í vinnuna á morgun. Laters.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 10:58:26 / snikkin

Skil ekki af hverju allt gengur á afturfótunum þessa dagana

Pirr pirr pirr pirr pirr pirrrrrrrrrrrrRRRRRR!!!!!

 Held ég sleppi því að lesa blöðin - ég mundi örugglega þjóta úr vinnunni og berja nokkrar "vel" valdar manneskjur. Eða ég mundi hlaupa eins hratt og ég kemst í ÁTVR og kaupa mér sterkt áfengi og sturta í mig einsog einum pela (af Tópas). Á nefnilega einn pela af Tópas inni í Bogahlíð - vona bara að hann sé þar enn (hann var nefnilega óupptekinn og alles).

Pirrrrrrrrpirrrrpirrrpirrrirrririririririririririrrrrpiiiiiiirrrrrrr.

 Ókei, eru sem sagt allir búnir að ná því að ég er EKKI Í GÓÐU SKAPI!!!!!!

 

Takk fyrir mig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 08:13:40 / snikkin

Ekki ennþá

Ég hef enn ekki farið á Barinn og fengið mér sígó og bjór. :cry:  Á miðvikudagskvöldið ætluðum við Lilja og Gunni að fara en ekki fyrr en eftir Canada's Next Top Model (já, við reynum að halda í hefðina - skiptir einu hvort það sé Americas, Canadas eða Kenyas NTM). En því miður var Liljan orðin svo slöpp að við fórum ekki neitt.

Í gærkvöldi ætluðum við Leifur að kíkja. Ég var orðin alveg geðveikt spennt og hlakkaði mikið til þó ég væri alveg dauðþreytt eftir vinnuna. Til að gera langa sögu stutta þá enduðum við á rúntinum til tíu en þá bað ég hann um að skutla mér heim enda ætlaði ég ekki að fara seint á Barinn, mig langaði bara að fá mér einn lítinn bjór og sígó. Maður veit svo sem hvernig fólk er á fimmtudagskvöldum - enda er fimmtudagskvöld síðasta kvöld fyrir helgi og margir orðnir spenntir. Reyndar er örugglega ágætt hlutfall af fólki sem djammar á fimmtudagskvöldum.

Anyways... ætla að skella mér á tónleikana á Gauknum í kvöld. Hef ekki hugmynd um hvort nokkur fari með mér enda skiptir það svo sem ekki miklu máli. Ég býst alveg við því að fara ein, don't know why but I do. Ætli það megi reykja inni á Gauknum??

Ojæja, ég ætla að setja punktinn hérna í bili. Laters.


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 62327
Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010