Saga af stúlku
26.03.2008 09:30:20 / snikkin

Dómgæslan í stórleikjunum á páskadag

Jæja, ég verð nú að segja að United-menn eru greinilega hæstánægðir með að það var Mascherano en ekki Ronaldo sem fékk þetta frekar umdeilda rauða spjald. Jú, samkvæmt reglum er þetta spjald en hafa dómarar ekki venjulega gefið smá sénsa þegar leikmenn eru á gulu spjaldi.
Fyrir þá sem segja að dómarinn í leik Liverpool og Man.Utd. hafi staðið sig vel langar mig að segja: "BULLSHIT". Leikur Chelsea - Arsenal var sýndur strax á eftir og þar sá maður sko GÓÐA dómgæslu. Þar var einn Arsenal maðurinn eitthvað að rökræða mikið við dómarann, var greinilega soldið æstur og tjah, endaði með einhverjum handahreyfingum ("talk to the hand"). Þessi leikmaður fékk ekkert spjald. Hann var ekki með gult spjald á bakinu eða neitt en maður gefur leikmönnum smáséns. Þið skuluð ekki reyna að segja mér að dómarinn hafi séð alla þessa svipi sem Mascherano gerði. Og United menn, ég vona að þið segið það sama þegar Ronaldo verður sýnt rautt fyrir leikaraskap og mótmæli.
Það eyðileggur stórleiki að reka leikmann út af - einsog sýndi sig og sannaði á páskadag. Enda var Liverpool - United leikurinn frekar leiðinlegur en Chelsea - Arsenal leikurinn spennandi og skemmtilegur. Efast meira að segja um að United mönnum hafi þótt sinn leikur skemmtilegur (þó það sé auðvitað alltaf sætt að vinna).

Ég vildi bara koma minni skoðun á framfæri, finnst þessi umræða fyrir neðan allar hellur. Reynið að sýna fram á sambærilega hegðun dómara - og líka gula spjaldið á Torres. What the fuck?? Torres hefur greinilega sagt nokkur orð og sneri sér svo við og ÞÁ fer dómarinn að teygja sig í gula spjaldið. Hvað er að?? Mér finnst ekkert skrítið að Mascherano hafi ákveðið að mótmæla - er mest hissa á að allt liðið hafi ekki mótmælt enda er vaninn hjá leikmönnum sá að mótmæla þegar það er dæmt. Sérstaklega ef þeim finnst þeir óréttlæti beittir - og persónulega fannst mér dómarinn hallast að United.
Þessi dómari átti greinilega slæman dag, því miður fyrir pool-ara en sem betur fer fyrir united-menn. Held svo sem að United hefði unnið þetta en leikurinn hefði verið miklu skemmtilegri ef Mascherano hefði ekki verið rekinn út af.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 13:24:48 / snikkin

Hverjum finnst þetta í lagi???

Tveir dómar sama dag á sama landinu.

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu

mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu

sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar *sex hundruð þúsund

*krónur í miskabætur. --

 

 

----Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að greiða Auði

 Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimmhundruð þúsund* í

 fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af ævisögu Halldórs. Þá er

 Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6 milljónir í málskostnað.

 

 URRRRRRR... djöf verður maður klikkaður!!!!!!:evil::evil::evil::evil::whut:


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 22:05:57 / snikkin

Voða löt

Jæja elskurnar, ég viðurkenni það fúslega að ég hef verið löt við að skrifa en það kemur betri tíð með betri tíma.
Carlos kom með hræðilegar fréttir að sunnan - hálfbróðir hans missti mömmu sína og ömmu í flugslysinu í Mérida um daginn og eru þeir bræður búnir að vera með pabba sínum í Caracas, Pto. Ordaz og eru núna í Mérida.
Ég sjálf er búin að vera að vinna og svo bara með félögunum, hef verið soldið slöpp svona on-off en undanfarið bara þreytt. Mjög asnalegt, fer snemma að sofa, vakna snemma en er samt geispandi meira en hálfan daginn.
Auðvitað hef ég líka verið að fylgjast með deilunni í S-Ameríku. Ekki veit ég hvað gerist en maður verður að fylgjast með. Trúi Chavez til alls en vona bara að hann fari nú að hætta sem forseti, eða kannski frekar bara að einbeita sér að sínum þegnum. Jú, það eru misjafnar skoðanir um hann en þegar vantar mjólk, egg og fleiri nauðsynjavörur þá er eitthvað virkilega að. Ég er ekki að tala um að það vanti mjólk einu sinni í viku - ég er að tala um að það finnst t.d. varla mjólk í búðum í Pto. Ordaz. Þar stendur fólk í biðröð af því það heyrði úti á götu að kannski kæmi mjólk í búðina í dag.

Ég fékk út úr DELE prófinu í gærkvöldi. Ég náði ekki - það var þessi fyrsti hluti sem drap möguleika mína - mig vantaði 3,51 stig í fyrsta hlutanum til að ná prófinu.

Hérna koma einkunnirnar:
1. Hluti. 
  • Lesskilningur (15 stig):     6,32  
  • Skrifleg tjáning (20 stig):   14,67      
  • Samtals:  20,99 stig. 
  • Lágmarksstigafjöldi til að ná: 24,5 stig.
  • Þarf greinilega að laga þetta, lesa spænskar bækur og æfa mig í að skrifa texta.
2. Hluti.
  • Málfræði og orðaforði (20 stig):   16,67.
  • Samtals: 16,67 stig.
  • Lágmarksstigafjöldi til að ná: 14 stig.
  • Gæti nú alveg gert betur - og mun örugglega gera það ef ég stend mig í heimanáminu.
3. Hluti.
  • Hlustunarskilningur (15):  13,13
  • Munnleg tjáning (30):  29,0
  • Samtals:  42,13 stig.
  • Lágmarksstigafjöldi til að ná: 31,5 stig.
  • Mjög stolt af þessum parti :d

    En þannig fór með þetta próf hjá mér - ég mun reyndar taka það aftur í nóvember. Það munaði einfaldlega of litlu. Ég veit að ég mun laga það, ég mun rúlla þessu prófi upp í annað skiptið. Hlakka reyndar bara til að fara að læra meiri spænsku. En nú ætla ég að fara að koma mér fyrir undir sænginni. Góða nótt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 19:49:42 / snikkin

Nú er ég áhyggjufull

Kynnti mér málið í dag. Hvíldi mig og hef verið að skoða það aftur. En þetta meikar bara ekkert sens. Af hverju vill Chavez fara í stríð? Af hverju má ekki bara ræða þetta mál og reyna að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur?

<object width="450" height="370" classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" codebase="http://fpdownload.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=8,0,0,0"><param name="movie" value="http://www.dv.is/divi/embed/?file=http://www.dv.is/divi/xml/smw6d36gujsebuv0jtk9f2zotdls/playlist.xml"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed width="450" height="370" src="http://www.dv.is/divi/embed/?file=http://www.dv.is/divi/xml/smw6d36gujsebuv0jtk9f2zotdls/playlist.xml" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent"></embed></object>

(ef vídjóið sést ekki þá set ég linkinn líka: http://www.dv.is/divi/spila/smw6d36gujsebuv0jtk9f2zotdls  )    :cry:


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 62260
Klukkan
Dagsetning
16. mars 2010