Saga af stúlku
27.09.2008 07:35:14 / snikkin

*geisp*

Jæja, fréttirnar eru ekki margar en skemmtilegar. Pabbi virðist ætla að ná sér að fullu sem er auðvitað bara æðislegt.
Lilja (hrakfallabálkur) brákaði á sér hægri ristina sl. sunnudag og er komin í gifs fyrir neðan hné. Eins og hefur komið fram er hún "smá" hrakfallabálkur og er alltaf að missa jafnvægið eða reka sig í... en hún má ekkert stíga í veika fótinn í allavega 2 vikur.
Gunzo var líka óheppinn um daginn þegar Græna Þruman gafst upp á Bústaðarvegi. Hún hefur verið flutt á verkstæði.
Og er þá ekki komið að mér?
Ég var á leiðinni í vinnuna í gærmorgun þegar ég flækti hægri þumalinn í stýrinu og tjah, tognaði. Asnalegt slys en sársaukafullt. Ég græt nú iðulega af öðrum ástæðum en líkamlegum sársauka but I cried like a baby. :cry:  Anyways, hendin er fín, hún lagast yfir helgina. Ef ekki þarf ég að fara uppá slysó og við vitum alveg hvað starfsfólkið þar er alúðlegt og góðhjartað. Man varla eftir læknum þar sem vilja/nenna að hlusta á þig.
Annars segi ég bara góðan daginn, elskið friðinn og strjúkið kviðinn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 22:26:16 / snikkin

Passaðu hvað þú segir....

Sæll Félagi...
Geir Jón, yfirlögregluþjónn, segir að dómurinn sem gæinn fékk fyrir að kýla löggu og taka hana hálstaki (NB. árásarmaðurinn var svo tekinn hálstaki og bundinn niður) sé of vægur. Hann hlýtur þá að vonast til þess að löggan sem réðist á unglinginn fái þyngri dóm, mér finnst fyrir neðan allar hellur að fullorðinn maður ráðist á ungling sem er gjörsamlega óvopnaður og ekki búinn að gera neitt af sér. Jú, fyrirgefið - unglingurinn var með kjaft og stæla. Síðast þegar ég vissi var það ekki refsivert með ofbeldi...


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 22:08:36 / snikkin

Réttlæti??

Skil ekki alveg hvernig þetta virkar - getur lögga sem hefur verið ákærð enn unnið hjá löggunni?
Sjá hér!
Hvað segir það um kerfið okkar???


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 62260
Klukkan
Dagsetning
16. mars 2010